26febrúar

Farinn

Þá er ég flutur héðan.  Ég er búinn að færa mig yfir á torduringi.blog.is

kv
Þórður Ingi
26. febrúar 2007 klukkan 10:22
Þórður Ingi Bjarnason
Engin athugasemd
22febrúar

Er hægt að neita fólki að ferðast

Ég hef verið að velta því fyrir mér hvort hægt sé að banna þeim sem ættluðu að koma til landsins á svokallaða klám ráðstefnu að ferðast.  Nú hefur Hótel Saga neitað fólkinu um gistingu og er þvi hætt við ráðstefnuna.  Þó að ég sé ekki hrifinn af þeirri klámvæðingu sem hefur sprotið  upp á Íslandi þá finnst mér ferðaþjónustan ekki getað metið hverjir koma hignað og hverjr ekki.  Meðan fólkið hefur ekki brotið af sér þá er það fráls að koma til landsins.  Getur ekki verið að aðrir hópar skoði hvort borgi sig að koma til Íslands með hvatahópa eða ráðstefnur þar sem hætta er á að þeim verði vísað á dyr með stuttum fyrirvara.  Ísland hefur markaðsett sig sem tilvalið land fyrir ráðstefnur og hvataferðir en ættla samt að velja úr þeim sem vilja sækja landið heim.  Hvort er betri landkyning klámráðstefna eða að fólki er vísað frá þar sem þau vinna að málum sem er ekki við hæfi . hér á landi  Hvað um alltvþað efni sem er gefið út hér á landi sem er í sama dúr og þetta fólk vinnur við.  En það eru Íslendignar sem vinna það þá er það þá í lagi. 
Mér finnst þetta of langt gegnið þegar hópar með aðrar skoðanir en meirihluti landsmanna sé rekið burt með sýnar skoðanir.  Það á að leifa þessu að fara fram en ef eitthvað misjafnt kemru í ljós og fólk í hópnum brýtur Íslensk lög þá má gríba til aðgerða annars ekki.
kv
Þórður Ingi
22. febrúar 2007 klukkan 16:22
Þórður Ingi Bjarnason
1 athugasemd
21febrúar

Öskudagur

Öskudagurinn er í dag og mikið er búiða að vera að gera hjá krökkunum.  Kl 10 í morgun hittust allir í sal Hólaskóla og þar var skipt í hópa og var farið að syngja fyrir starfsfólk skólans.  Ekki var mikil vinnufriður í skólanum þar sem söngur hljómaði um allt hús og að sjálfsögðu fegnu allir nami fyrir sönginn.  Þarna voru ýmsir flottir búnignar.  eftir hádgegi var grímuball í leikskólanum og þar voru leik og grunnskóla börn samankominn.
Það hefur skapast skemmtileg hefð á þessum degi og börninn hafa gaman af þessu. Munurinn á öskudeginum hér og í bænum er sá að þegar við vorum í bænum fór dagurinn í að keyra krakkana milli fyrirtækkja til að synga og fá nami, hér er þetta ekki það stórt að þetta tók ekki nema 1 klst sem er mjög gott. 

Eftir að ég kom heim úr skólanum í dag þá greip letinn mig. ég nenni ekki að koma neinu í verk. 

best að halda áfram að liggja í leti.
kv
Þórður Ingi

21. febrúar 2007 klukkan 17:23
Þórður Ingi Bjarnason
Engin athugasemd
16febrúar

Vikan liðinn og smágröfur

Þá er þessi vika á enda kominn.  Þetta er búinn að vera sú vika sem ég hef beðið eftir að klárist og nú er komið að langþráði helgafríi og mun ég taka því rólaga um helginn.  Það getur reindar verið að ég fari að jeppast eitthvað það er kominn tími á það.  Ef veður leifir og færi gott þá er ég að spá í skreppa á Hveravelli á sunnudag. 

Í gær  var tekinn ákvörðun um ferð til frankfurt í apríl.  Leikskólilnn á Hólum og Varmahlíð eru að fra að skoða leikskóla og við makar förum með.  En þar sem við ættlum ekki að fara í leikskóla skoðun þá hugsa ég að þýsku barirnir verði teknir út það verður ekki slæmt.

Ýmilselg sem maður lætur plata sig út í.  Þegar ég var í bænum síðast þá hafði samband við mig maður sem er með umboð fyrir  smágröfur.  Hann bað mig að taka með mér norður bækling og kynningardisk af gröfunum ef einhver vantar svona í sveitinna.  Að sjáfsögðu tók ég þetta að mér og nú þarf ég að fara að gera eitthvað til að koma þessu á framfæri hér á norðurlandi.  Ef þið vitið um einhvern sem þarf góðar smágröfu sem býður upp á marga möguleika þá getið þið haft samband við mig og ég mun sýna viðkomandi það sem ég er með undir höndum. 

læt þetta duga í bili
hafið góða helgi.
kv
Þórður Ingi
16. febrúar 2007 klukkan 15:58
Þórður Ingi Bjarnason
2 athugasemdir
14febrúar

Andlaus

hæhæ

Ég hef nú verið hálf andlaus til að blogga siðustu dagaf Frá því að ég kom norður aftur eftir dvöl á höfuðborgarsvæðinu. 

Í gær kláraði ég hópverkefni og er það mikill léttir að það sé búið.
Í dag er leikskólinn hjá Anítu lokaður þar sem starfsdagur kennara er haldinn á suðárkók svo ég er heima í dag með stelpuna. 
þá er best að liggja í léti og slappa vel af.

Hef ekki neitt að seigja núna en andinn kemur kennski yfir mig eftir afslöppunardag.

kv
Þórður Ingi

14. febrúar 2007 klukkan 07:54
Þórður Ingi Bjarnason
1 athugasemd
04febrúar

Þorrablót og bæjarferð

Þá var ég að koma heim af þorrablóti sem haldið var á Hofsósi.  Þetta var frábært blót.  skemmtiatriði sem byggðust upp á því sem gerst hefur í sveitinni á liðnu ári.  Eftir mat og skmmtun þá hóst dans og var mikið dansað.  þetta var eitt af þeim skemmtilegri böllum sem ég hef farið á.
Á morgun mun ég halda suður og þar mun ég vera næstu viku.  Þar sem ekki er mikið farið í borginna þá er best að nýta tíman vel og er ég búinn að finna mér eitthvað verkefni á hverjum degi. 
Ég veit ekki hversu miklu tölvusambandi ég verð þannig að ekki er víst að komi blogg fyrr en í næstu viku.

kveðja
Þórður Ingi
04. febrúar 2007 klukkan 08:58
Þórður Ingi Bjarnason
Engin athugasemd
03febrúar

Nú er erfitt að vera í sveitinni

Nú á þessi titill vel við,  Ég var að fá þær slæmu fréttir að amma mín sé kominn á sjúkrahús alvarlega veik og var send i bráðaaðgerð.  Læknar  eru búnir að vara okkur við þar sem þeir vita ekki hvernig þetta fer en þeir eru ekki bjartsýnir.  Amma og afi hafa alla tíð verið mér svo kær.  Þegar ég bjó í bænum þá fór ég í kvöldkaffi til þeirra 3-4 sinnum í viku og mér fannst slæmt ef ég komst ekki svo oft.  Nú finnst mér slæmt að geta ekki stokkið til afa og verið hjá honum á þessum tíma.  Ég ættlaði að fara í bæinn á sunnudag en ég bíð eftir fréttum hverngi aðgerðinn gekk, ef þetta er að verða tvísínt með hana þá ferð ég strax af stað í fyrramálið.
Nú sit ég við síman og hugsa í bæinn.  Eins og það er gott að búa á landsbyggðinni þá er það erftitt á svona tímum.  Nú er best að halda áfram að bíða og vona það besta.
kv
Þórður Ingi
03. febrúar 2007 klukkan 03:29
Þórður Ingi Bjarnason
1 athugasemd
31janúar

Súrt að tapa fyrir Dönum

Ég var að vona það að danir myndu liggja í því, en það voru við.  Þetta var skemmtilegur leikur og strákarnir stóðu sig þrátt fyrir allt vel í þessari baráttu. 
En það veður að líta á bjrtuhliðarnar og vinna rússa á morgun.  Nóg um Handbolta.  Ég var að koma úr tíma í stjórnun og var verið að tala um siðfræði  þessi dagur var mjög lengi að líða þar sem þreytan var yfirsterkari og athiglinn ekki með besta móti,  Það lá við að það væri siðferðislga rangt að halda okkur svona lengi í dag. 

 Næstu helgi er Þorrablót hér í sveitinni það verður haldið á Hofsósi  og verður mikið fjór.  Þar verða dansskórnir teknir fram eftir langt hlé. 

Á sunnudag mun ég svo skreppa á Stór Hafnarfjarðarsvæðið en í næsta litla bæ við Hafnarfjörð nánar tiltekið í Reykjavík mun kennsla vera í 4.daga .  Ferðinn í bæinn verður nýtt þar sem ég óskaði eftir að aðalfundur húsfélgsisn þar sem íbúðinn mín er verði hadið á mánudagskvöld, þar sem ég var kosinn formaður fyrir þrem árum og þarf ég því að mæta til að skila af mér. 

Ég held að allir dagar séu skipulagðir að einhverju leitii, mun ég svo fara heim aftur á Laugardag.

Læt þetta duga í bili
kv
Þórður Ingi

31. janúar 2007 klukkan 21:17
Þórður Ingi Bjarnason
Engin athugasemd
25janúar

Ísland 36 Túnis 30

Þetta var góður leikur, gaman er að sjá hvað strákarnir berjast vel og einbeitinginn hjá þeim leini sér ekki.  Nú hafa þeir unnið sterk lið.  Þeir voru smeikir fyrir frakka leikinn en tóku hann með frábærum leik.  Túnisleikurinn var spennandi þrátt fyrir að túnis hafi komist nokkur mörk yfir þá létu þeir það ekki á sig fá og settu allt á fult og unnu með leikin með sex marka mun.  Svo er póland á morgun og við tökum þá líka og hölum efsta sætinu í riðlinum. Stöndum með strákunum í blíðu og stríðu.

Áfram Ísland

25. janúar 2007 klukkan 00:23
Þórður Ingi Bjarnason
1 athugasemd
23janúar

Nú eru allir glaðir efir landsleikinn í gær,  ég fór og horfði á hann í Grunnskólanum á Hólum þar var sett up tjald og mikil stemnig.  Það sést að Íslendingar geta unnið þær þjóðir sem þær vilja vinna.  Frakkar áttu aldrei möguleika á að jafna mörkinn. Við skulum halda þessu áfram og komast í átta liða úrslit.

Ég var að horfa á Kopás frá því á sunnudag.  Þvílíkur viðbjóður sem þessir menn eru sem misnota börn.  Hvernig stendur á því að maður sem hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fái að ganga laus rúmum tveimur árum seinna.  svona menn eiga ekki að fá reinslulausn svons snemma.  Í dómnum var talað um að hann gæti haldið þessari iðju sinni áfram efir áfplánun, þetta var haft  eftir sálfrðingi sem annaðist hann.  Dómskerfið okkar er í molum, fangelsis mál eru líka í molum og sú refsing sem fangar eiga að afplána er oft á tíðum lúxus hótelgisting og frálsræðið er ótrúlega mikið.

Ég þekki einn fanga mjög vel sem situr reglulega inni fyrir ýmis brot í viðskiputm, Þar sem þessi aðili er nátengdur fjölskyldunni þá heimsótti ég hann oft í þau fanglesi sem hann hefur verið í.  Eitt skipti þegar ég kom til hans þá létt ég fangaverði fá gemsan minn þar sem ekki má fara með síma inn til fanga.  Þegar ég var kominn inn í klefa hjá honum þá sagði hann mér að nú væri hann loks kominn með góða vinnuaðstöu hann opnaði tölvu og sýndi mér skjöl sem hann var að vinna með.  Hann komst í nettengingu og sendi tölvupósta til sinna viðskipta manna.  Ég varð svo hissa á þessu að ég hafði smanband við afa minn sem er faðir þessa manns og afi var lögreglumaður þannig að hann þekkti mál hans frá nokkrum sjópnarhornum.   Þetta kom honum ekkert mikið á óvart.  Eftir að hann losnaði út þá kom í ljós að hann hafi fjárfest í húsi í Bandaríkjunum.  þetta gerði hann meðan hann sat inni.  Hannn var reinfdar ekki leingi laus þar sem hann var tekinn nokkrum mánuðum seinna og fékk aftir langan dóm.  Nokkru eftir þetta þá var að vísu hert síma og samskipti sem fangar hafa þar sem annað mál kom upp sem fangi var aðaðskiulegjandi svo þá lagaðist þetta mikiðþ  Ef þetta er sú refsing sem fangar fá þá er ekki von á góðu.
Hér veður að herða refsingu við hinn ýmsu brot og ekki leifa mönnum að fá reinslausn of snemma.  Barnaníðingar eiga að fá að dúsa inni en þeir verða að fá þá meðferð til að reina að koma þeim á rétta braut eftir afplánun.  Að sjá í þættinum kopás hverngi þessir menn nota netið til að komst yfir börn er skelfilegt að sjá.  Þar sem afbrot hafa breist mikið á sýðustu árum þá veðru dómskerfið að vilgja eftir og herða viðurlaög í verstu glæpum.  Barnamisnotkun er eitt af því alvarlegasta sem til er og taka þarf hart á því

Hef þetta ekki lengra í bili
kv
Þórður

23. janúar 2007 klukkan 15:10
Þórður Ingi Bjarnason
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur